Nokia 2710 classic - Um tækið

background image

Um tækið
Þráðlausa tækið sem er lýst í þessari handbók er samþykkt til notkunar í (E)GSM 850, 900, 1800 og 1900 MHz símkerfi.

Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar um símkerfi.

Í tækinu gætu verið foruppsett bókamerki og tenglar á netsíður þriðju aðila sem gætu gert þér kleift að nálgast slíkar síður.

Þær tengjast ekki Nokia og Nokia leggur hvorki stuðning sinn við þær né tekur ábyrgð á þeim. Ef þú nálgast slík svæði skaltu

huga að öryggi og efni.

Viðvörun:

Við notkun allra aðgerða í þessu tæki, annarra en vekjara, þarf að vera kveikt á tækinu. Ekki skal kveikja á tækinu þegar notkun

þráðlausra tækja getur valdið truflun eða hættu.

Græn ráð 31

background image

Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum lögum og virða staðbundnar venjur, einkalíf og lögmæt réttindi annarra, þ.m.t.

höfundarrétt. Varnir vegna höfundarréttar geta hindrað afritun, breytingu eða flutning sumra mynda, tónlistar og annars efnis.

Taktu öryggisafrit eða haltu skrá yfir allar mikilvægar upplýsingar sem geymdar eru í tækinu.

Þegar tækið er tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók þess vandlega, einkum upplýsingar um öryggi. Ekki má tengja saman

ósamhæf tæki.

Myndir í þessum bæklingi kunna að líta öðruvísi út en á skjá tækisins.

Aðrar mikilvægar upplýsingar um tækið er að finna í notendahandbókinni.